Um okkur
Gjafir Jarðar er andleg verslun staðsett í miðbæ Reykjavíkur, í gömlu húsi með sál að Ingólfsstræti 2. Verslunin hefur verið starfrækt frá 15. febrúar 2005. Á efri hæð hússins er meðferðastofa en þar er boðið upp á heilun, miðlun, reiki heilun, stjörnukort, bowentækni, orkupunktajöfnun og spáspil
Steinar og kristallar í öllum formum og gerðum skipa stóran sess í versluninni enda stuðla þeir að því að halda mjög góðri og fallegri orku á svæðinu, en það líður ekki sá dagur að við heyrum frá viðskiptavinum sem koma til okkar og tala um hversu orkan sé yndisleg og slakandi í búðinni. Margir segja að kristallar séu orkugjafar Jarðarinnar, enda verið notaðir um ómunatíð til heilunar og orkuaukningar/jöfnunar. Fegurð kristalla og steina er óendanlega mikil og hver og einn hefur sína sér eiginleika og sál. Steinar og kristallar eru gjafir Móður Jarðar til okkar sem búum á Jörðinni.
Fyritækið flytur inn flestar sínar vörur.

